Monday, May 19, 2008

Hæhæ

Ég er að hugsa um að flytja. Ég er komin með dálítið mikið leið á þessu umhverfi. Kíkið á nýju síðuna mína: www.123.is/elin_heida

Posted by Elín Heiða in 22:58:00 | Permalink | Comments (1) »

Sunday, March 30, 2008

Harðsperur frá helvíti

Sælt veri fólkið!! Þá er þessi verkefnahrina búin og sú næsta um það bil að taka við. Núna er kennsluhlé í skólanum þar sem okkur gefst tækifæri á að fara í heimaleikskólana okkar og vinna þar verkefni. Á fimmtudaginn byrjar svo vettvangsnám sem verður í eina viku. Eftir það verða endalaus verkefnaskil, úff og svo prófin. Ég fer í tvö próf, 13 og 16 maí. Það eru margir að kvarta yfir því að þau séu svo seint en mér finnst það bara fínt, þá getur maður klárað öll þessu verkefni, stoppað svo smá til að ná andanum og hafa svo nógan tíma til að lesa fyrir prófin. Hefði samt alveg viljað hafa smá lengri tíma á milli prófana en þetta er samt allt í lagi.

Ég er ekki enn komin með vinnu fyrir sumarið, eiginlega veit ég ekki ennþá hvað ég vill gera. Ég hef sótt um á nokkrum stöðum en ekki heyrt neitt. Ég veit að það er alveg einn og hálfur mánuður þangað til ég get byrjað að vinna, en ég vill bara vera búin að afgreiða þetta svo ég þurfi ekki að vera að stressa mig yfir þessu og geti einbeitt mér alfarið að skólanum. Mig langar að vinna einhversstaðar sem ég fæ dálítið vel útborgað, en þar sem ég er ekki með neina menntun og ekki nein sambönd heldur sé ég það ekki alveg gerast. Ætli ég endi ekki bara á einhverjum leikskóla með 144 þús á mánuði í heildarlaun. Mér finnst það ekkert sérlega eftirsóknarvert.

Ég er alltaf að djöflast eitthvað í ræktinni, fór á föstudaginn í tíma sem heitir Shape og er þar aðallega verið að gera styrktaræfingar. Ég mætti frekar galvösk og var til í hvað sem er, ég vissi sko ekki hverju ég átti von á. Í byrjun tímans átti maður að ná sér í alls konar dót, pall, dýnu, lóðastöng og lóð á hana og handlóð. Ég hafði aldrei farið í svona tíma áður þannig að ég hermdi bara eftir hinum, var ekkert að taka tillit til þess að allir hinir voru töluvert sterkari og í betra formi en ég. Ég líka vildi ekki vera aumingi og vera með léttara en hinir. Svo byrjuðum við að gera æfingarnar sem voru að mínu mati mjög erfiðar (sérstaklega með allt of þung lóð) og var konan alltaf að telja niður og sagði “átta í viðbót” svo þegar við vorum búin að gera átta að þá var það “fjórir í viðbót” og eftir þá fjóra var það “klárum þetta með því að taka fjóra enn” shit ég var sko búin á því, og eftir klukkutíma var ekki mikið eftir. Ákvað samt að reyna að taka smá cardio en ég entist ekki lengur en 7 mínútur. Eftir það dröslaðist ég upp á teygjusvæðið, ég hélt sko ég myndi ekki hafa það upp. Í gær vaknaði ég svo með þessar líka fínu harðsperur í vöðvum sem ég vissi ekki að væru til. Ég ákvað nú samt að vera hugrökk og fara í ræktina og reyna að gera smá, líka til að reyna að ná sperunum úr. Það virkaði ekki, ég var gersamlega að drepast í gærkvöldi og er ég ennþá verri í dag. Það að setjast á klósettið er verulega sársaukafullt og er frekar erfitt að lyfta hægri hendinni. Ég held ég reyni að kyngja smá stolti næst og vera með örlítið léttara á stönginni.

Held þetta sé bara orðið gott í bili………

síja

Posted by Elín Heiða in 17:20:35 | Permalink | Comments (5)

Wednesday, March 12, 2008

Allt ómögulegt

Jább, í dag er svona dagur þar sem allt er ómögulegt. Fyrir það fyrsta að þá á ég að skila 20% verkefni á föstudaginn, 10% verkefni á mánudaginn, 15% verkefni á þriðjudaginn og 10% verkefni á miðvikudaginn og ég er ekki byrjuð á einu einasta. Hef ekki verið með hausinn á réttum stað undanfarið. Það má kannski segja að ég hafi verið með hausinn í ræktinni upp á síðkastið. Ég hef farið í ræktina nánast á hverjum einasta degi síðustu fimm vikur. Þegar venjulegt fólk fer skyndilega að hreyfa sig rosalega mikið og oft að þá kannski grennist það eða léttist, en ekki ég. Ég bara þyngist og grennist ekki neitt. Ég er ótrúlega fúl yfir þessu, okey ég veit að vöðvar eru þyngri en fita, en þeir eiga líka að taka minna pláss en fita þannig að ég ætti kannski að hafa minnkað eitthvað pínúlítið, en nei, ég er alveg jafn stór og ég var fyrir fimm vikum, fituprósentan alveg sú sama:-( Það er ömurlegt að það sé enginn árangur, því árangur er svo ótrúlega mikil hvatning. Þó svo að árángurinn sé bara pínu ponns að þá er það hvatning. Ég hef bara enga hvatningu:-(

Ég verð nú samt að halda áfram, verð allavega að fara að huga að þessum verkefnum. Úff gangi mér vel!!!

Posted by Elín Heiða in 16:56:23 | Permalink | Comments (4)

Thursday, February 14, 2008

Skólaskvísa

Vitiði það að ég er í alveg ótrúlega skemmtilegu námi. Það er brjálað að gera þessa dagana og fullt af mjög krefjandi verkefnum en þetta er samt svo gaman. Allar þær einkunnir sem ég hef fengið hingað til er bara rosalega fínar, ég er allavega mjög sátt. Fimmtudagar eru sérstaklega skemmtilegir. Þá er ég í myndmennt fyrir hádegi frá 8:30 til 12:00, það eru oftast mjög skemmtilegir tímar, mikið dúttl, dund og spjall. Ég er samt mjög óörugg í myndmenntinni, frekar ófrjó og með of mikila fullkomnunaráráttu. Eftir hádegið er svo tónmennt í einn og hálfan tíma. Það er ótrúlega gaman, höfum verið að leika okkur með hryn og spila á klukkuspil og svona. Núna er samt myndmenntin búin og í næstu viku byrjum við í textílhönnun. Ég vona að mér eigi eftir að ganga betur í því, hef allavega töluvert meiri reynslu á því sviði. 

Það er líka brjálað að gera í skólanum hjá honum Gorma mínum. Fer í skólann snemma á morgnana og kemur heim seint á kvöldin. Einu skiptin sem við hittumst, þá erum við bæði hálf meðvitundarlaus og hrjótandi eins og okkur sé borgað fyrir það. Skemmtilegt ha?? Svo er hann að fara að vinna um helgina þannig að ekki munum við vera mikið saman þá. En sem betur fer að þá er þetta bara svona tímabundið. Við ætlum ekki að vera í skóla for ever, eða allavega ekki ég. 

Núna er ég orðin alveg rosalega sibbin, ætla að koma mér í bólið.

Góða nótt 

Posted by Elín Heiða in 23:12:14 | Permalink | Comments (1) »

Sunday, February 3, 2008

Bolla, bolla, bolla

Það er alveg greinilegt að ég hef verið í mínum eigin heimi undanfarið. Ég var í dag að lesa tölvupóst frá einum kennaranum mínum sem endaði bréfið með því að segja ,,hafið það gott á bolludaginn”. Ég kom alveg af fjöllum, leitaði uppi dagatal til að gá hvort hann væri nokkuð á morgun. Jújú hann er á morgun. Ég náttúrulega hentist í búðina að kaupa efni í bollur. Þetta er eini dagurinn á árinu sem er leyfilegt að borða bollur og ég ætlaði sko ekki að missa af því. Þar sem ég hafði aldrei bakað bollur áður var ég nú soldið stressuð og hringdi í mömmu til að fá það alveg á hreint hvernig átti að gera. Ég ætlaði sko ekki klúðra neinu. Ég þurfti greinilega ekki að hafa neinar áhyggjur vegna þess að svo virðist vera sem ég sé alger bollubaksturssnillingur, í einu orði. Bollurnar voru geggjað góðar og að sjálfsögðu með öllu tilheyrandi.

Ég eiginlega nenni ekki að skrifa mikið meira núna, enda ekki mikið að gerast.
Síja

Posted by Elín Heiða in 23:13:25 | Permalink | Comments (1) »

Wednesday, January 23, 2008

Verkefnaflóð

Úff já það er svakalega mikið að verkefnum eitthvað núna. Svona mörgum litlum, eitt fór meira að segja alveg fram hjá mér og fattaði ég það daginn eftir að ég átti að skila. Mín ekki alveg með hugann á réttum stað:-/ En það er víst ekkert hægt að gera í því núna, þetta er búið og gert, bara gera betur næst.

Jebb ég semsagt náði öllum prófunum en ég gat hækkað eina 6,5 í 7,5. Ég setti víst vefsíðuna sem ég gerði á vitlausan stað á netinu og fékk ég þar af leiðandi 0 fyrir hana. Ég talaði við kennarann og sagði honum hvar ég setti hana. Hann skoðaði hana og gaf mér 8 fyrir, þannig að lokaeinkunnin hækkaði um einn heilan. Ég að sjálfsögðu mjög sátt við það.
 
Ég á nú eiginlega að vera að gera verkefni núna sem á að skila í fyrramálið, en ég einhvernveginn kem mér ekki í það, er samt byrjuð smá en á voðalega erfitt eitthvað með að halda áfram. Er að skrifa um af hverju tókst ekki að koma á föstu skólahaldi í kjölfar fræðslulaganna 1907, mjööööög spennandi. Svo er ég líka í myndmennt og á að vera búin að teikna og lita helling fyrir morgundaginn, iss ég verð bara að í alla nótt.

Ætli það sé ekki best að fara að hefjast handa, úff gangi mér vel…….

Posted by Elín Heiða in 14:37:47 | Permalink | Comments (2)

Friday, January 11, 2008

Pirri pirr

Ég er nú orðin frekar leið á þessu bloggi, ég hef aldrei frá neinu sniðugu að segja og það gerist voðalega lítið eitthvað. Kannski reyni ég að halda þessu eitthvað áfram. Ég hef allavega frá því að segja núna að ég náði öllum prófunum:-) Fékk reyndar engar svakalegar einkunnir en ég náði og það er meira en ég hef getað sagt hingað til. Ég fékk tvær 6,5 og eina 7. Skólinn byrjaði á mánudaginn en þessi vika hefur verið mjög róleg, allt byrjar af krafti á mánudaginn og mun ekki róast fyrr en í vor þegar prófin eru búin. Ég verð í fjórum fögum á þessari önn, Aðferðafræði og menntarannsóknir, Félagsfræði og skólasaga, Listir og barnamenning og Talað mál. Mér líst bara vel á þetta allt saman og vona ég að þetta eigi eftir að ganga vel.

Þrátt fyrir þetta er ég voðalega pirruð eitthvað þessa dagana, það gengur ekki neitt eins og það á að ganga og er ég orðin mjög leið á að bíða og láta tímann leiða í ljós. Hlutirnir eiga bara að vera í lagi og fólk á að vinna vinnuna sína. Svo er það náttúrulega þannig að þegar maður er pirraður að þá lendir það oftast á þeim sem standa manni næstir, aumingja Haraldur hefur held ég, fengið ársbyrgðir af pirringi. Hann sem hefur ekkert gert til að verðskulda hann:-/ Vona að þetta komist allt í lag bráðum 

Posted by Elín Heiða in 00:29:15 | Permalink | Comments (5)

Monday, December 24, 2007


Gleðileg jól

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

Ég er núna heima í sveitinni og er að bíða eftir möndlugrautnum, þegar hann er kominn í mallakút bruna ég í bæinn og held jól með honum Haraldi mínum. Það verður mjög kósí hjá okkur. Við ætlum að elda æðislegan jólamat og drekka rauðvín með. Ohh ég hlakka svo til, ég hef aldrei eldað hamborgarhrygg né búið til sósu aðra en pakkasósu, þannig að þetta á eftir að verða mjög skrautlegt. Vona samt að ég brenni ekki neitt. Á morgun ætlum við svo að eyða deginum upp í sveit og förum svo í jólaboð hjá minni fjölskildu á annan, endum svo á hörku balli í Hvíta húsinu. Það verður mjög gaman, hlakka geggjað mikið til. Læt þetta duga í bili, veriði stillt og borðiði á ykkur gat.


Posted by Elín Heiða in 12:18:25 | Permalink | Comments (1) »

Saturday, December 8, 2007

Já það er sko sannarlega búið að vera mikið að gera. Skólinn gengur bara þokkalega og fór ég í fyrsta prófið í dag. Ég held að það hafi bara gengið þokkalega. Þá eru bara tvö próf eftir og eitt verkefni og verð ég búin öllu skólaveseni 18 des og er þá mín bara komin í jólafrí. Ég ætlaði ekki að fá mér neina vinnu í jólafríinu en þar sem peningar eru af skornum skammti hef ég verið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að reyna að vinna eitthvað. Gæti þá kannski unnið eitthvað áfram eina og eina helgi eftir áramótin, svona aðeins til að bæta fárhaginn. En skólinn er númer eitt, tvö og þrjú þannig að ég ætla bara að sjá til.

Dagurinn í dag er ekki búinn að vera sá skemmtilegasti. Jú, ég byrjaði á því að fara í próf í morgun eftir að hafa lært í alla nótt. Var svona frekar steikt í kollinum en vonandi hefur það reddast. Þegar ég kom heim náði ég að leggja mig í klukkutíma, var svo bara eitthvað a vesenast hérna heima, horfa á biggest loser taka til og sona. Um hálf ellefuleitið ákvað ég að hringja á læknavaktina til að athuga með opnunartímann á morgun og fá að tala við hjúkrunarfræðing og fá hennar álit á dálitlu sem hefur verið að valda mér áhyggjum. Málið er að annar kálfinn er soldið stærri en hinn og það er rauður aumur hnúður á honum. Ég sagði henni að ég hefði fengið blóðtappa einusinni og hún sagði að ég yrði að koma til þeirra bara núna, talaði mjög alvarlega og hræddi mig mjög mikið. Blóðtappar er eitthvað sem mig langar ekki til að upplifa aftur. Ég skellti mér á læknavaktina talaði þar við lækni sem taldi ráðlagt að ég færi á bráðamóttökuna í fossvogi til að láta athuga þetta, þannig að auðvitað skellti mín sér þangað. Ég var komin þangað um hálf tólf, var spurð fullt af spurningum og tekið fullt af blóði úr mér. Klukkan hálf eitt kom læknirinn til mín og sagði mér að han ætlaði að bíða og sjá hvað blóðprufurnar sögðu og að það mundi taka um klukkutíma. Ég var náttúrulega drullu þreytt og kom mér vel fyrir á bekknum með teppi og kodda og steinsofnaði. Vaknaði svo þegar læknirinn kom rúmlega hálf tvö, ótrúlega rugluð. Náði því samt að hann sagði að hann vissi ekkert hvað væri að mér en ég væri ekki með blóðtappa, sem var í raun það eina sem ég vildi fá að heyra. Þetta var æðislegur læknir, spjallaði smá við mig bara um lífið og tilveruna. Sagði mér að einusinni hafi hann verið mjög feitur, en tekist að grenna sig og halda sér grönnum. Alltaf gaman að fá staðfestingu á að þetta er hægt.

Ég skil bara ekkert af hverju ég er ekki löngu farin að sofa. Ég, svefnfíkillinn mikli. Ætli ég sofi ekki bara allan daginn á morgun. Eftir áramótin hætti ég samt að vera svona mikill svefnfíkill :-) Ég man ekki hvort ég sagði frá því en ég fór í svefnrannsókn um daginn. Þá þurfti ég að tengja allskonar dót á mig áður en ég fór að sofa og tæki tók upp hvernig ég andaði. Mér fannst ég nú ekki sofa mikið en greinilega nógu og mikið til að hætta að anda að 15 sinnum á klukkutíma sem þýðir að ég er með kæfisvefn mitt á milli þess að vera á vægu og meðalháu stigi. Eftir áramótin fæ ég öndunarvél til að sofa með. Ekki beint spennandi en það á allt eftir að breytast. Á ekki eftir að þurfa að sofa svona mikið eins og ég geri núna og vera hressari og með betri einbeitingu og minni. Ohh hlakka svo til :-) Ég held samt að þetta sé orðið ágætis blogg í bili og löngu kominn tími á að fara að sofa. Hef ekki sofið nema tæpa tvo tíma á síðustu 34 tímunum.
Góða nótt

Posted by Elín Heiða in 04:04:47 | Permalink | Comments (2)

Saturday, October 27, 2007

Hér með hefur það sannast að ég er mjöög lélegur bloggari. Ég hef ótrúlega oft ætlað að blogga en svo endað á því að gera eitthvað allt annað. Ég hef verið að bardúsa ýmislegt síðasta mánuðinn. Skólinn skipar samt stóran sess og er ég í mesta basli við að halda áætlun. Allt í einu um daginn hrundi yfir mig mörgum stórum verkefnum og hef ég verið að vinna eitthvað í þeim. Ég hef samt fengið eina 20% ritgerð til baka og fékk ég 8, ég er ekkert smá ánægð með það, alveg í skýjunum. Vonandi gengur mér jafn vel í hinum.

Í síðustu viku byrjaði ég í vettvangsnáminu. Ég er á leikskólanum Sjónarhól í grafarvoginum og er ég með tveimur öðrum úr kennó, þær eru samt í fjarnámi. Það var æðislega vel tekið á móti okkur og fannst mér ótrúlega notalegt að vera í þessum leikskóla, heimilislegur og kósí. Fyrsta daginn vorum við ótrúlega týndar eitthvað, vissum einhvernveginn ekkert hvað við áttum að gera og ekki fólkið sem tók á móti okkur heldur. Við samt náðum að finna út úr því og byrjuðum strax síðasta þriðjudag að vinna að verkefninu okkar. Við áttum að gera skráningu á leik barna, taka myndir og skrifa niður. Það gekk alveg ótrúlega vel, við vorum allar rosalega ánægðar.

Mér hefur hins vegar ekki gengið alveg jafn vel í ræktinni, það hefur gengið heldur illa að mæta. Enda soldið leiðinlegur tími sem námskeiðið er á, akkúrat á þeim tíma sem ég er þreyttust og lötust, væri lang best að geta farið bara beint efir skóla, þá þarf ég ekki að vera að keyra alltaf fram og til baka. En námskeiðið er nú alveg að verða búið, kannski kaupi ég mér bara venjulegt kort næst, kemur í ljós. Annars er frekar erfitt að lifa bara á námslánum, ég er ekkert að fatta það að maður getur ekki alveg keypt allt sem manni langar í. Ég kvíði einmitt soldið fyrir jólunum, ég á það til að missa mig í jólagjafakaupum. Er að spá í núna að ákveða fyrirfram hvað ég ætla að eyða mikið í hvern og því má ekki breyta undir neinum kringumstæðum.

……..jæja ætla að reyna að læra eittvað smá fyrir háttinn

Síja

Posted by Elín Heiða in 01:29:48 | Permalink | Comments (5)